Þungar áhyggjur af lækkunum afurðaverðs

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps lýsir yfir þungum áhyggjum vegna boðaðra lækkana á afurðaverði til sauðfjárbænda í komandi sláturtíð. Í ályktun sem sveitarstjórn samþykkti á fundi á miðvikudag segir að gangi þau áform eftir muni afleiðingarnar verða ófyrirsjáanlegar og mikið högg fyrir sveitir landsins.

Skorar sveitarstjórn skorar á alla hlutaðeigandi að leita allra leiða til að tryggja sauðfjárbændum ásættanlegt verð fyrir afurðir sínar og koma í veg fyrir hrun sauðfjárræktar í landinu. Í ályktuninni segir m.a. að ef boðaðar verðlækkanir gangi eftir og 10-12% verðlækkun verði hjá öllum sláturleyfishöfum þá megi ætla að tekjutap sauðfjárræktarinnar í landinu verði á bilinu 600-650 milljónir króna, en sem samsvari því að um 70 þúsund lömb drepist úti í haganum. Því sé hætt við að margir bændur muni að óbreyttu bregða búi, ekki síst yngstu bændurnir, sem muni valda starfsgreininni miklum skaða um ókomna tíð.

„Sala á dilkakjöti á innanlandsmarkaði hefur gengið vel síðustu misserin og birgðastaða hjá sláturleyfishöfum nú í upphafi sláturtíðar er ekki óeðlilega mikil. Einnig hefur komið fram í skoðanakönnunum að íslenskir neytendur eru mjög jákvæðir gagnvart íslenskri landbúnaðarframleiðslu. Má því ætla að möguleikar séu til hækkana til smásöluaðila. Það verður því að teljast ósanngirni að velta kostnaðarhækkunum hjá sláturleyfishöfum alfarið yfir á bændur sem eru fyrir ein tekjulægsta starfsgrein landsins,“ segir loks í ályktun sveitarstjórnar Húnavatnshrepps.

Fleiri fréttir