Þungur bensínfótur
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
23.07.2015
kl. 10.02
Við umferðareftirlit á varðsvæði lögreglunnar á Norðurlandi vestra á fimmtudaginn í síðustu viku stöðvaði lögreglan ökumann bifreiðar sem mældist á 162 km hraða á vegakafla þar sem tæpum sólarhring áður hafið verið ekið á lamb sem slapp inná veginn úr girðingu þar nærri.
Ökumaðurinn reyndist vera 17 ára og með þriggja ára bráðabirgðaökuskírteini útgefið fyrir sex mánuðum síðan. Þessi 17 ára einstaklingur má nú búast við því að þurfa að greiða sekt sem er í grunninn kr.140.000,- auk þess að fá þrjá refsipunkta í ökuferilskrá og að verða sviptur ökuréttindum í tvo mánuði. Frá þessu er sagt á fésbókarsíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra.