Þuríður Harpa í Dhelí - Hversdagsleiki

Eftir æsta helgi tókum við mánudeginum með mikilli ró, ég sem hafði átt að mæta í Lumbarsprautu á hinn spítalann í dag var þrátt fyrir lyf frá Geetu byrjuð á þessu mánaðarlega og mátti því ekki fara í sprautu. Ég var bara þónokkuð fýld yfir þessu, fannst frekar fáránlegt að pillurnar sem höfðu átta að koma í veg fyrir þetta virtust hafa ruglað kerfið hjá mér svo að ég var viku fyrr á ferðinni en ég átti að vera. Held að Guð ætti gera mér lífið aðeins bærilega og skella mér snöggvast yfir breytingaskeiðið, bara klára þetta frá núna, takk. Geeta lét mig á fleiri pillur til að freista þess að stoppa þetta og nú er gert ráð fyrir mér í þessa sprautu á fimmtudaginn. Ég er reyndar nokk ánægð með það, hef þá fleiri daga í endurhæfingunni og get þá notað helgina til að jafna mig ef ég verð veik af sprautunni. Við stöllur tókum því rólega í dag. Ég er ánægð með gönguna mína hún fer batnandi, ég gæti vel þegið aðeins meira jafnvægi, sem hlýtur að koma á endanum. Það er mörg búmannsraunin og eitt af því sem böggaði mig hér var að löppin á sturtustólnum mínum gaf sig, sem betur fer lenti ég ekki í vandræðum. Ég fékk nýjan stól og var bara nokk ánægð þar til ég fór að brölta um í honum, hann nefnilega getur fallið allur í sundur ef ég passa mig ekki og lenti ég í því að þurfa að halda saman hliðunum á stólnum til að hann félli ekki saman undir mér, þá var gott að hafa Auði í næsta nágrenni. Hún kom stökkvandi þegar hún heyrði neyðarópin og hjálpaði mér að smella stólnum réttum saman. Í dag var svo einn af aðstoðarmönnunum fengin til að teypa stólinn saman þannig að hann gæti ekki smellt sér svona í sundur við minnsta hnjask. Eftir hádegisæfingar sátum við úti í sólinni og lásum, ekkert var farið og ekkert fleira gert. Við sátum á gangstéttinni og rétt við tærnar á okkur þeysti umferðin áfram grænir túk túkar, menn á reiðhjólum, gangandi vegfarendur, rútur og fleira, þustu hjá með tilheyrandi flauti. Smá saman verður maður ónæmur fyrir þessum hávaða og eril, og eins og ekkert sé sjálfsagðara situr maður nánast í miðri umferðinni slappar af í sólinni og les í bók.

Fleiri fréttir