Þurrt en fremur kalt
Búast má við þurri en ef til vill fremur kaldri verslunarmannahelgi á Norðurlandi vestra. Þar eru engar skipulagðar útihátíðir að þessu sinni, en þeir sem kjósa notalega útilegustemmingu ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, enda fjöldi góðra tjaldsvæða og mikið um afþreyingu og góða veitingastaði á svæðinu.
Á morgun föstudag, er spáð hægri norðlægri átt og bjartviðri með köflum en sums staðar þokubökkum við sjóinn. Léttskýjað á morgun en hvessir heldur síðdegis, norðan 5-10 annað kvöld. Hiti 8 til 13 stig en 1 til 7 stig í nótt og þá svalast í innsveitum.
Yfir helgina er spáin fyrir Strandir og Norðurland vestra eftirfarandi:
Á laugardag:
Norðan 8-15 m/s, hvassast austast. Rigning A-til, en bjart með köflum S- og V-lands. Hiti 8 til 16 stig yfir daginn, hlýjast SV-til.
Á sunnudag:
Norðlæg átt 5-13 m/s. Bjart veður SV- og V-lands, en annars skýjað og dálítil úrkoma NA-til. Hiti 5 til 17 stig, hlýjast SV-til.
Á mánudag (frídagur verslunarmanna):
Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum en stöku skúrir síðdegis SV-til. Hiti 3 til 14 stig, svalast NA-til.