Þúsund tonn þvegin á ári
Ullarþvottastöð Ístex hefur verið staðsett á Blönduósi síðan árið 2004, þegar hún var flutt þangað frá Hveragerði. Er þetta eina ullarþvottastöð landsins og þar eru árlega þvegin um þúsund tonn af ull. Um helmingur ullarinnar fer í framleiðslu Ístex í Mosfellsbæ en helmingnum er skipað út frá Sauðárkróki og flutt til Bretlands, þar sem ullin fer meðal annars í gólfteppaframleiðslu. Feykir leit inn í Ullarþvottastöðina í síðustu viku og hitti fyrir þá Guðmund Svavarsson og Guðmann Jónasson.
„Þetta eru um þúsund tonn sem fara hérna í gegn á ári,“ segir Guðmundur, um leið og hann sýndi blaðamanni nýja ullarpökkunarvél sem verið er að taka í notkun um þessar mundir. Þessi þúsund tonn koma af um 460 þúsund fjár. Þeir bændur sem búa í 100 kílómetra radíus frá Blönduósi koma sinni ull þangað sjálfir en þeir sem lengra eiga að fara nota þjónustu tíu flutningsaðila sem aka um landið og safna ull sem lengra er að sækja. Nánar er fjallað um Ullarþvottastöðina á Blönduósi í nýjasta tölublaði Feykis, sem kom út í gær.