Þúsundasti lax sumarsins veiddur
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
10.08.2015
kl. 09.31
Í gær veiddist þúsundasti lax sumarsins úr Laxá á Ásum, en þar er einungis veitt á tvær stangir og veiddist laxinn á svokallað „micro hitch“ í Krókshyl. Þetta kemur fram í frétt mbl.is. Samtals 60 löxum var landað í gær og því var dagurinn einn af betri veiðidögum sumarsins. Í fyrra veiddur 1.006 laxar alla vertíðina, en á þessari verðtíð er búið að skrá samtals 1.020 veidda laxa úr ánni.
Samkvæmt frétt mbl.is er mesta skráða veiði í ánni síðustu fjóra áratugina var 1975 og 1978 þegar rúmlega 1.800 laxar veiddust. Enn er rúmur mánuður í að veiði ljúki og því alls ekki ólíklegt að áin nálgist þær tölur áður en yfir lýkur.