Þverárfjall lokað og flughált í Blönduhlíð

Í dag hefur gengið á með nokkuð hvössu veðri og mikilli hláku víða á Norðurlandi vestra. Þverárfjall er lokað og allir aðrir vegir eru merktir hálir nema hvað flughált í Blönduhlíð.

Samkvæmt veðurspá sem gerð var nú á ellefta tímanum í kvöld spáir norðaustan 13-23 m/s, hvassast NV-til. Rigning eða slydda fyrir norðan og austan og snjókoma til landsins, en annars þurrt að kalla. Dregur úr vindi og úrkomu á NA- og A-landi með morgninum.

Hvessir með vaxandi úrkomu A-til undir kvöld. Víða norðaustan 15-23 annað kvöld og rigning eða slydda, en þurrt að kalla SV-til. Hiti 0 til 7 stig, svalast inn til landsins.

Fleiri fréttir