Til sjávar og sveita - Viðskiptahraðall fyrir sjávarútveg og landbúnað

Til sjávar og sveita heldur opinn kynningarfund  á morgun, fimmtudaginn 31. janúar, kl. 12:00 í húsnæði Farskólans við Faxatorg og eru allir velkomnir til fundarins. Hér er um að ræða viðskiptahraðal sem ætlað er að aðstoða frumkvöðla við að byggja upp næstu kynslóð fyrirtækja sem koma til með að vera í fremsta flokki innan landbúnaðar og sjávarútvegs.

Til sjávar og sveita er fyrsti viðskiptahraðallinn á Íslandi sem einblínir á nýjar lausnir og sjálfbæra verðmætasköpun í landbúnaði og sjávarútvegi. Viðskiptaheimurinn er að taka örum breytingum þessa stundina en vaxtartækifæri íslensks atvinnulífs liggja í auðlindum og hugviti með sjálfbærni að leiðarljósi. Til sjávar og sveita er ætlað að aðstoða frumkvöðla við að byggja upp næstu kynslóð fyrirtækja í fremsta flokki landbúnaðar og sjávarútvegs. 

Dagskrá:
Sunna Gunnars Marteinsdóttir frá Landbúnaðarklasanum
Hildur Magnúsdóttir stofnandi Pure Natura
Hjörvar Halldórsson, verkefnastjóri KS
Verkefnastjóri frá Icelandic Startups kynnir Til sjávar og sveita

Að lokum verður opið fyrir spurningar um þetta nýstárlega verkefni sem styrkt er af IKEA, Íslenska sjávarklasanum, Matarauði Íslands, Landbúnaðarklasanum og HB Granda. 

Opið verður fyrir umsóknir í hraðalinn til 21. febrúar næstkomandi. Allar nánari upplýsingar og umsóknarform má finna á heimasíðu hraðalsins; www.tilsjavarogsveita.is

Fleiri fréttir