Tilkynning frá knattspyrnuliðinu Badboys Blönduósi
Nú er komið að fyrsta og líklega síðasta heimaleik sumarsins hjá hinu leyndardómsfulla knattspyrnuliði Badboys á Blönduósi en leikið verður á móti Kormáki Hvammstanga klukkan 19:00 í dag 14. júlí. Ef þið komið til með að koma á völlinn... þá fáið þið að sjá alvöru fótbolta leikin af ekta Blönduósingum og nærsveitungum en fáið líklega ekki heitt kaffi og kleinur í hálfleik, segir í tilkynningu frá liðinu.
Þó svo að liðið sé lítt þekkt virðist það ekki trufla kynningarfulltrúa liðsins á nokkurn hátt því þar á bæ vilja menn meina að það sé heimsfrægt eins og eftirfarandi kynning gefur til kynna: „Fyrir þá sem ekki vita hverjir hinir heimsfrægu Badboys eru, þá erum við núverandi Húnaþingsmeistarar eftir öruggan sigur á Kormáki 2 - 1 á síðasta ári. Við erum flest allir ungir og efnilegir og ef vel gengur þá stofnum við lið í 3. deildinni á næsta ári og byggjum upp lið sem Blönduósingar geta verið stoltir af. Allir mennskir fá frítt inn á völlinn.“