Tillaga að nýjum jarða- og ábúðarlögum
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur lagt fram til almennra athugasemda drög að frumvarpi til nýrra jarða- og ábúðarlaga þar sem horft er til fæðuöryggis, skynsamlegrar landnýtingar, eflingar búsetu í sveitum og möguleika til nýliðunar í landbúnaði.
Umrætt frumvarp sem er breyting á jarðalögum nr. 81/2004 og ábúðarlögum nr. 80/2004 hefur nú verið birt á vef sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis. Það hefur jafnframt verið sent hagsmunaðilum til umsagnar. Frestur til athugasemda og umsagna við frumvarpið er til 27. apríl.
Frumvarpið tekur mið af samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkana þar sem lögð er áhersla á matvælaöryggi þjóðarinnar og nýliðun greinarinnar. Í framhaldi af því skipaði ráðherra vinnuhóp sem skilaði af sér 1. desember síðastliðinn og byggja þau drög sem nú liggja fyrir m.a. á þeirri vinnu. Jafnframt er horft til ítarlegrar skýrslu nefndar um landnotkun sem skilaði af sér áliti í febrúar 2010.
Forsaga frumvarps þessa er að vinnuhópur um endurskoðun jarða- og ábúðarlaga var upphaflega skipaður með bréfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, dags. 21. ágúst 2009. Í erindisbréfi sem tekur meðal annars mið af samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna og skýrslu nefndar um landnotkun sem skilaði af sér áliti í febrúar 2010 er vísað til þess að þörf sé á að skerpa á skynsamlegri landnýtingu með tilliti til fæðuöryggis þjóðarinnar og eflingu búsetu í sveitum landsins. Í fylgiskjali með skipunarbréfinu var síðan gerð nánari grein fyrir verkefninu. Vinnuhópurinn skilaði af sér ítarlegri skilagrein til ráðherra, dags. 1. desember sl., ásamt vinnuskjali sem innihélt drög að ýmsum lagabreytingum.
Í ráðuneytinu hefur svo verið unnið áfram með frumvarpið með hliðsjón af niðurstöðum vinnuhópsins og ákvörðunum ráðherra. Bent er sérstaklega á kaflann: Meginbreytingar frá núgildandi löggjöf sem felast í frumvarpinu, bls. 10-13.
Óskað er umsagnar á frumvarpi þessu, svo sem ábendingar eða athugasemdir um efni frumvarpsins. Frestur til að skila umsögnum er til 27. apríl 2011. Athugasemdir skulu sendar bréflega á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið eða netfang ráðuneytisins: postur@slr.is