Tillitssemi mikilvæg

Aðstæður fyrir hjólreiðafólkið eru ekki alltaf góðar og því er tillitssemi mikilvæg. Mynd af Facebooksíðu WOW Cyclot­hon.
Aðstæður fyrir hjólreiðafólkið eru ekki alltaf góðar og því er tillitssemi mikilvæg. Mynd af Facebooksíðu WOW Cyclot­hon.

Vátryggingafélag Íslands, VÍS, vekur athygli á því í á heimasíðu sinni að í kvöld hefst hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon og því má búast við talsverðri fjölgun hjólreiðafólks á þjóðvegunum í vikunni meðan keppnin stendur yfir. Fyrstu hóparnir fara af stað í dag, þriðjudag, en flestir leggja af stað klukkan 19:00 annað kvöld og er reiknað með fyrstu keppendum ímark á föstu­dags­morg­un, en tími renn­ur út á laug­ar­dag. Hjólað verður eftir hringveginum norður fyrir og endað við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði. Mikilvægt er að allir ökumenn, bæði vélknúinna ökutækja og hjólandi, sýni fyllstu tillitssemi.

Í tilkynningu VÍS segir ennfremur: „Við hvetjum ökumenn vélknúinna ökutækja til að draga úr hraða þegar þeir fara fram hjá hjólreiðafólki, sérstaklega stórra ökutækja þar sem kjölsogið getur verið hjólreiðafólki erfitt. Jafnframt er mikilvægt að gefa þeim hjólandi gott pláss þegar tekið er fram úr, gæta að umferð á móti og vera reiðubúinn til að bíða í augnablik með framúrakstur vegna hennar.
Hjólreiðafólk þarf líka að huga að sínu öryggi. Aðstæður fyrir það eru ekki alltaf góðar á þessari leið og mikilvægt að það sé meðvitað um sýnileika sinn. Leitist við að hjóla í einfaldri röð þegar það er möguleiki, halda sig hægra megin á veginum og huga að öruggum skiptingum liðsmanna. Eins þarf að tryggja að bílstjóri liðsins sé ávallt vel vakandi og með athyglina við aksturinn." 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir