Tillögur að deiliskipulagi til sýnis

Fram kemur á vefmiðlinum Huni.is að bæjarstjórn Blönduósbæjar hafi samþykkt að endurauglýsa tillögur að deiliskipulagi fyrir Sölvabakka. Urðunarstaðurinn mun að öllu leyti verða í landi Sölvabakka á Refasveit.

Þetta var samþykkt á fundi þann 13. september samkvæmt 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða deiliskipulagssvæði  sem er um 30 ha að stærð og er heildarurðunarsvæðið 5-15 ha. Þar er gert ráð fyrir allt að 21.000 tonnum árlega til urðunar.

Tillagan sem er í formi uppdráttar og umhverfisskýrslu mun vera til sýnis á skrifstofu Blönduósbæjar Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduósi frá 19. september 2011 til 31. október 2011. Einnig er hægt að nálgast hana á heimasíðu Blönduósbæjar.

Hægt er að skila inn athugasemdum til skrifstofu Blönduósbæjarfyrir 31. október 2011 og skulu þær þá vera skriflegar.

Fleiri fréttir