Tillögur um 130 opinber störf í landshlutanum

Sérstök landshlutanefnd fyrir Norðurland vestra leggur til að 90 störf verði flutt á landshlutann auk þess sem 40 ný opinber störf verða til. Nærri eitt hundrað þessara starfa verða í Skagafirði, samkvæmt Fréttablaðinu sem hefur skýrslu nefndarinnar undir höndum.

Áður hefur verið greint frá innihaldi í skýrslu landshlutanefndarinnar á Feyki.is; m.a. flutningur skipareksturs Landhelgisgæslunnar til Skagafjarðar verið nefnd til sögunnar, efling Vinnumálastofnunar á Skagaströnd, bygging gagnavers á Blönduósi, flutningur RARIK á Sauðárkrók og efling menntastofnana á svæðinu.

Samkvæmt Fréttablaðinu eru settar fram 25 tillögur um flutning opinberra starfa í landshlutann sem og hugmyndir um ný opinber störf sem geti orðið til á Norðurlandi vestra.

„Við vonum að sem flestar af þessum tillögum verði að veruleika. Landshlutinn hefur í langan tíma verið í mikilli varnarbaráttu. Við höfum einnig séð að verkefni hafa oft og tíðum ekki ratað til landshlutans. Það er síðan forsætisráðuneytisins að meta þær tillögur sem við komum með. Ég á svo von á því að niðurstaða fáist fljótlega,“ sagði Stefán Vagn Stefánsson, oddviti Framsóknarflokksins í Skagafirði og formaður nefndarinnar, í samtali við Fréttablaðið. Hann segir skýrsluna nú til meðhöndlunar í forsætisráðuneytinu og bíði afgreiðslu ríkisstjórnar.

Auk Stefán Vagns sátu í nefndinni Héðinn Unnsteinsson frá forsætisráðuneytinu, Sigríður Svavarsdóttir frá sveitarfélaginu Skagafirði, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, oddviti Húnaþings vestra, og Valgerður Hilmarsdóttir, forseti bæjarstjórnar Blönduósbæjar. Ásmundur Einar Daðason, aðstoðarmaður forsætisráðherra, starfaði einnig með nefndinni.

Markmiðið að efla byggð á Norðurlandi vestra

Þá segir að markmiðið sé að efla byggð á Norðurlandi vestra og er bent á leiðir um hvernig stuðla megi að aukinni fjárfestingu á svæðinu, fjölga atvinnutækifærum og stuðla að jákvæðri byggðaþróun.

Erfitt er að henda reiður á kostnaði við þessar tillögur nefndarinnar. Sautján verkefni af 25 eru metin á um 370 milljónir króna, sem kæmi úr ríkissjóði. Þessar tillögur eru almenn verkefni sem og verkefni sem fela í sér sköpun um 29 stöðugilda.

Átta tillögur nefndarinnar eru þannig að um er að ræða flutning opinberra starfa inn í landshlutann frá öðrum svæðum, að mestum hluta frá höfuðborgarsvæðinu. Þar er um að ræða tæplega 90 stöðugildi. Í inngangi skýrslunnar segir að erfitt sé að meta kostnað við þær, kostnaður myndi að öllum líkindum aðeins falla til við flutning starfanna en eftir það ætti árlegur kostnaður að vera svipaður og áður.

Fleiri fréttir