Tilraunaverkefni um hækkað menntunarstig í Norðvesturkjördæmi
Tilraunaverkefni um hækkað menntunarstig í Norðvesturkjördæmi fer vel af stað. Verkefnið er liður í átaki til þess að hækka menntunarstig í íslensku atvinnulífi og eitt af nokkrum verkefnum sem sett voru af stað í framhaldi af kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins í maí 2011. Í sumar hafa 12 starfsmen á vegum verkefnisins farið vítt og breytt um kjördæmið og tekið viðtöl við um 700 stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja og stofnana. Megintilgangur viðtalanna er að kanna þörf einstaklinga og atvinnulífs fyrir menntun. 100 viðtöl hafa verið tekin við starfsfólk af erlendum uppruna. Verkefnið nýtur mikils velvilja og hefur starfsfólk alls staðar fengið góðar móttökur.
Viðtölum lýkur í byrjun september en bráðbirgðaniðurstöður voru kynntar á fundi verkefnastjórnar sem fram fór á Ísafirði föstudaginn 23. Ágúst síðastliðinn. Í verkefnastjórninni sitja fulltrúar atvinnulífs, stéttar-félaga, sveitarfélaga og skóla- og fræðslustofnana í Norðvesturkjördæmi. Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst, er formaður verkefnastjórnar en skólinn annast jafnframt umsýslu um verkefnið.
Bráðabirgðaniðurstöður gefa til kynna að skortur er á iðnmenntuðu fólki í kjördæminu og að þörf er á námi tengdu sjávarútvegi, matvælaframleiðslu og þjónustu. Algengasta ástæða þess að fólk hættir námi er áhugaleysi, fjárhagsaðstæður og fjölskylduaðstæður.
Í viðtölum við erlent starfsfólk kemur m.a. í ljós að meirihluti þeirra hyggst búa áfram á Íslandi næstu 5 árin og að íslenskukunnáttu þeirra er ábótavant.
Skoðanakönnun á meðal fyrirtækja í kjördæminu hefur verið unnin um þörf fyrir menntun, heppilegasta námsfyrirkomulag og fleira sem snýr að eflingu menntunar í atvinnulífinu. Á næstunni fer af stað könnun á meðal einstaklinga í Norðvesturkjördæmi sem byggir á þjóðskrárúrtaki. Leitað verður svara við ýmsum spurningum sem snúa að áhuga og aðgengi að námi, hvatningu og hindrunum.
Ítarlegar niðurstöður viðtala og kannana verða kynntar í lok september. Þá verða einnig kynntar tillögur um verkefni og aðgerðir sem byggja á umræddum niðurstöðum.