Tískusýning í Heimilisiðnaðarsafninu

Á morgun sunnudag kl. 15.00 verður haldin tískusýning í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi á handofnum fatnaði í eigu Guðrúnar Vigfúsdóttur, veflistakonu. Sýningin er í tengslum við Sumarsýningu safnsins "Úr smiðju vefarans mikla".

Frá kl. 14.00 munu konur sýna ýmiskonar handiðn og kaffi og kleinur eru innifaldar í aðgangseyri.

Heimilisiðnaðarsafnið er opið alla daga frá kl. 10.00 - 17.00

Fleiri fréttir