Tíu milljónir veittar í samfélagsstyrki
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
10.08.2015
kl. 08.54
Samfélagsstyrkjum að upphæð tíu milljónir króna var úthlutað úr Samfélagssjóði Landsbankans í síðustu viku. Samkvæmt fréttatilkynningu frá bankanum bárust um 300 umsóknir og hlutu alls 26 verkefni styrki að þessu sinni.
Samfélagsstyrkjum er einkum ætlað að styðja mannúðar- og líknarmál, menntamál, rannsóknir og vísindi, forvarnar- og æskulýðsstarf, sértæka útgáfustarfsemi og verkefni á sviðum menningar og lista.
Tvö verkefni á vegum Rauða krossins og Geðhjálpar hlutu samtals eina milljón króna, tólf verkefni 500 þúsund krónur hvert og önnur tólf fengu 250 þúsund króna styrk.
Samfélagsstyrkir Landsbankans – ágúst 2015
1.000.000 kr.
- Rauði krossinn á Íslandi og Geðhjálp – Verkefnið Hópastarf og virkni á vegum Rauða krossins sem ætlað er að styðja við bakið á ungum drengjum sem eiga erfitt með að fóta sig í lífinu og landssöfnunin Út með'a, vitundarvakning gegn sjálfsvígum ungra karla sem unnin var í samstarfi Rauða Krossins og Geðhjálpar.
500.000 kr.
- Ása Helga Hjörleifsdóttir – Stelpur skjóta, sumarnámskeið í kvikmyndagerð fyrir stelpur á aldrinum 15-18 ára.
- Djúpavogshreppur – Samtímalistsýningin Rúllandi snjóbolti/6 á Djúpavogi.
- Fjölbrautarskólinn í Breiðholti – Samstarfsverkefni með Þjónustumiðstöð Breiðholts um að bæta geðheilbrigði nemenda í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
- Gljúfrasteinn – hús skáldsins – Lesum Laxness, verkefni sem miðar að því að hvetja til lesturs á verkum Halldórs Laxness.
- Glætan –Starfsemi Tómstundamiðstöðvar Glætunnar fyrir börn og ungmenni sem eiga undir högg að sækja félagslega.
- Háskóli Íslands – Ljósakassinn, námsefni um ljós í tækni og vísindum, gefinn í alla grunnskóla landsins.
- Heimili og skóli – Fræðsluherferð fyrir nemendur í 6. bekk í Reykjavík um ábyrga netnotkun.
- Marta Nordal – Uppsetning á einleik sem byggður er á lífi Nazanin Askari og fjalla mun um kven- og tjáningarfrelsi og íslamska trú.
- Samband garðyrkjubænda – Heimildarkvikmynd um garðyrkju á Íslandi í tilefni af sextíu ára afmæli sambandsins.
- Tómas Njálsson – Blindravitinn, hugbúnaður sem auðveldar blindum og sjónskertum að finna dyr eða innganga að byggingum.
- Tölvumiðstöð fatlaðra – Þróun á kennsluaðferð til að efla læsi íslenskra barna og unglinga með lestrarörðugleika.
- Winda – félag áhugafólks um pólska og íslenska menningu – Starfsemi Vængs, félagsmiðstöðvar fyrir unga innflytjendur sem ættaðir eru frá Póllandi.
250.000 kr. styrkir
- Anna Dröfn Ágústsdóttir – Söfnun heimilda um ljósmyndarann Ólaf K. Magnússon, sem oft hefur verið nefndur ljósmyndari þjóðar.
- Askja Films – Stuttmyndin Heiti potturinn, sem ætlað er að fanga sérstæða og skemmtilega umræðuhefð og þá nánd sem myndast í heita pottinum.
- Bjarminn – samtök gegn kynferðisofbeldi – Skipulagning fyrirlestra og starf sjálfsstyrkingarhópa í Vestmannaeyjum til að styðja við fórnarlömb kynferðisofbeldis.
- Borgarsögusafn Reykjavíkur – Sýningin Sjókonur – íslenskar konur til sjós í fortíð og nútíð sem haldin er í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna.
- Ester Marít Arnbjarnardóttir – Hönnun á myndrænum leiðbeiningum fyrir börn um flokkun sorps fyrir börn.
- Fama – Útgáfa bókarinnar Frú ráðherra: frásagnir kvenna á ráðherrastóli en í henni eru viðtöl við tuttugu konur sem gegnt hafa ráðherraembætti í ríkisstjórn.
- Haraldur Sigurðsson – Ritun sögu bæjarskipulags og mótun umhverfis á Íslandi á 20. öld.
- Ljóðvegir – Inn á græna skóga, sýning á ljóðum Snorra Hjartarsonar skálds.
- Skáksamband Íslands – Ritun bókar um sögu Reykjavíkurmótanna í skák eftir Helga Ólafsson stórmeistara.
- Svipir – Leiksýningin Endatafl eftir írska Nóbelsskáldið Samuel Beckett.
- Sögufélagið – Ritverkið Kristján X. Konungur Íslands 1918-1944.
- Ævar Þór Benediktsson – Lestrarátak Ævars vísindamanns fyrir nemendur í 1.-7. bekk í íslenskum grunnskólum.