Tíu taka þátt í söngkeppni FNV
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
11.02.2014
kl. 14.07
Söngkeppni NFNV verður haldin miðvikudaginn 12. febrúar með glæsibrag á sal Fjölbrautaskólans. Húsið opnar klukkan 19 og herlegheitin hefjast klukkan 19:30, miðaverð er aðeins 1000 krónur fyrir nemendur FNV og 1500 fyrir aðra.
Tíu atriði eru skrá til leiks og njóta þau aðstoðar hljómsveitar sem er skipuð þeim Sigvalda Helga Gunnarssyni, Alexi Má Sigurbjörnssyni, Benedikt Rúnarssyni, Guðfinnu Olgu Sveinsdóttir og Jódísi Erlu Gunnlaugsdóttir. Eftir söngkeppnina verður haldið ball í skólanum með Basic House Effect fyrir nemendur FNV og aðra framhaldsskólanemendur og kostar 1000 krónur inn fyrir nemendur FNV og 1500 fyrir aðra.
Fréttatilkynning