Töfrakonur leita eftir smásögum

Töfrakonur leita eftir sögum fyrir næsta smásögusafn en fyrirhugað er að gera samskonar kilju og þær gáfu út fyrir jólin í fyrra.

Töfrakonur eru byrjaðar að safna smásögum og hvetja alla til að „grafa upp gamlar sögur eða að skrifa nýja“, eins og fram kemur í tilkynningu frá þeim. Sömuleiðis hvetja þær þá sem tóku þátt í fyrra að vera með á ný.

Sögurnar þurfa að berast fyrir 1. október nk. og má senda á netföngin brandsstadir@emax.is , langamyri@emax.is og tofrakonur@gmail.com. Einnig er hægt að hafa samband við Þuríði, s. 6991328, Jóhönnu, s. 4527140 og Birgittu, s. 4527119. Töfrakonur eru jafnframt með facebook síðu.

Fleiri fréttir