Tónleikar í Félagsheimilinu Hvammstanga
Þórhallur Barðason og Sigurður Helgi Oddsson verða með tónleika í Félagsheimilinu Hvammstanga í kvöld, miðvikudaginn 4. apríl og hefjast þeir kl. 21.
Samkvæmt auglýsingu í sjónhorninu verður á fjölbreytt blanda af innlendum og erlendum söngperlum efnisskránni. Allir eru boðnir velkomnir.
Aðgangseyrir kr. 1.500, Frítt fyrir 14 ára og yngri. Athugið, aðgangseyrir greiðist með reiðufé.