Tónlistarhátíðin Gæran - niðurröðun hljómsveita
Nú styttist óðum í tónlistarhátíðina Gæruna, en hún hefst á sólóistakvöldi nk. fimmtudag. Dagskrá hátíðarinnar teygir sig yfir þrjá daga. Sólóistakvöld er haldið á fimmtudeginum á skemmtistaðnum Mælifelli og tónleikarnir á föstudeginum og laugardeginum eru á aðalsvæði hátíðarinnar. Það er 18 ára aldurstakmark en yngri tónlistarunnendur eru velkomnir í fylgd með foreldri/forráðamanni, 12 ára og yngri fá frítt inn.
Armbandið á Gæruna kostar 6.000.- og hægt er að kaupa það á midi.is eða í forsölu á Kaffi Krókur.
Það sem er innifalið í því er:
Sólóistakvöld á Mælifelli (kostar annars 1.000kr.)
Tónleikar á föstudagskvöldi (kostar annars 4.000kr.)
Tónleikar á laugardagskvöldi (kostar annars 4.000kr.)
Að auki fá handhafar Gæruarmbandsins eftirtalda afslætti:
Frítt inn á DJ Bigga á Mælifelli á föstudagskvöld (kostar annars 1.000kr.)
Borga 1.500kr. inn á ballið með Greifarnir á laugardagskvöldið (kostar annars 2.000kr.)
Borga 800kr pr mann/pr nótt á tjaldsvæðið á Sauðárkróki hjá Tjöldum í Skagafirði www.tjoldumiskagafirdi.is (kostar annars 1.100kr)
Fá 10% afslátt hjá Drangeyjarferðir
Fá 20% afslátt hjá Viking Rafting Iceland
Afsláttur af sérstökum Gærumatseðli á Kaffi Krók og bjórtilboð.
Eftirfarandi tónlistarmenn eru að spila hvaða kvöld. Ekki verður auglýst tímasetning á böndin, s.s. þetta er ekki í tímaröð.
Fimmtudagur; Gillon, Soffía Björg og Ösp Eldjárn, Árni Rúnar, Óskar Harðar, Fríða Dís, Rafaella og J.O.N.
Föstudagur; Sometime, Stafrænn Hákon, Jónas Sig, Alchemia, Contalgen Funeral, Ultra-Mega Technobandið Stefán, Steinsmiðjan, Bellstop, Dusty Miller, Úlfur Úlfur og The Royal Slaves.
Laugardagur; Valdimar, Funk That Shit, The Vintage Caravan, Blind Bargain, Hymnalaya, Tilbury, The Wicked Strangers, Greifarnir, Baggabandið, XXX Rottweiler hundar og Kontinuum