Trausti á Bjarnargili í framboð fyrir VG

Frestur til að skila inn framboði í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðvesturkjördæmi lauk í gærkvöldi. Ljóst er að oddviti flokksins Jón Bjarnason gefur ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu fyrir flokkinn en Trausti Sveinsson frá Bjarnargili í Fljótum býður sig fram og er sá aðili sem getur talist fulltrúi Norðurlands vestra á framboðlistanum.

Frambjóðendur eru eftirfarandi:

  • Finnbogi Rögnvaldsson, Borgarnesi,  5.-6. sæti.
  • Lárus Ástmar Hannesson, Stykkishólmi
  • Lilja Rafney Magnúsdóttir, Súgandafirði, 1. sæti
  • Matthías Sævar Lýðsson, Húsavík á Ströndum, 3.-4. sæti.
  • Ragnar Frank Kristjánsson, Hvanneyri, 3.-6. sæti.
  • Reynir Eyvindarson, Akranesi, 3.-6. sæti.
  • Trausti Sveinsson, Bjarnargili í Fljótum, 1.-6. sæti.
  • Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, Kleppjárnsreykjum, 3.-6. sæti.

Fleiri fréttir