Tvær útaf keyrslur við Blönduós

Tveir bílar keyrðu út af í grennd við Blönduós í dag. Í öðru tilfellinu var um að ræða bílveltu og var  ökumanni þess bifreiðar fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur.

Mbl.is greinir frá því að ökumaður bifreiðarinnar sé ekki mikið slasaður en samkvæmt lögreglunni á Blönduósi var talið að hann væri með áverka á baki og því var hann fluttur suður með sjúkrabíl. Nokkurt tjón varð á bílnum og þurfti að flytja hann af vettvangi með vörubifreið.

Hitt tilfellið var ekki alvarlegt og eftir að bíllinn var dreginn aftur inn á veginn hélt ökumaður áfram ferð sinni.

 

Fleiri fréttir