Tveggja helga FAB LAB námskeið
Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra bíður upp á tveggja helga námskeið fyrir byrjendur í Fab Lab á Sauðárkróki. Verður það haldið 14.-15. september og 21.-22. september, ef næg þátttaka fæst. Þannig gefst tækifæri til að hanna og búa til nánast hvað sem er, það er brúa bilið frá hugmynd til framleiðslu.
Fab Lab (Fabrication Laboratory) er stafræn smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Fab Lab smiðjan gefur ungum sem öldnum, einstaklingum og fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni.
Námskeiðgjald er kr. 9.500 og efnisgjald fer eftir verkefnum. Boðið er upp á hagkvæma gistingu á Heimavist FNV fyrir þá sem koma langt að. Skráning og nánari upplýsingar í síma: 455-8000.