Tvöfaldur sigur á landsmóti STÍ á Húsavík

Keppnisfólk Skotfélagsins Markviss gerði góða ferð á Húsavík nú um helgina, en þar  fór fram síðasta Landsmót sumarsins í haglagreinum. Alls voru 22 keppendur á mótinu í karla- og kvennaflokki frá sex skotfélögum. Líkt og á mörgum mótum í sumar voru keppendurnir frá Skotfélaginu Markviss þau Brynjar, Guðmann og Snjólaug.

Ljóst var að mikil spenna yrði á mótinu enda barátta um stig til bikarmeistara í algleymingi en aðeins skyldi 1 stig að 3 stigahæstu konur landsins fyrir þetta mót og því til mikils að vinna að ná sigri á þessu móti. Svo fór að Snjólaug varð önnur í undankeppninni en hrökk svo í gang í úrslitunum og vann öruggan sigur í kvennaflokki og fer því inn í bikarmótið með fullt hús stiga eða 45 stig.

Mynd: Húni.is

Í karlaflokki var heldur minni spenna þar sem Guðlaugur Bragi Magnússon (frá Sunnuhlíð) frá Skotfélagi Akureyrar var þegar búinn að vinna þrjú landsmót í sumar og því kominn með fullt hús fyrir bikarmót. Baráttan snérist því fyrir næstu menn að minnka bilið í Guðlaug sem hafði sex stiga forustu á næsta mann í baráttunni um bikarmeistaratitilinn.

Eftir fyrri keppnisdag var Hákon Þór Svavarsson (frá Litladal) frá Skotíþróttafélagi Suðurlands með eins stigs forskot á unglinginn og heimamanninn Sigurð Unnar Hauksson. Guðmann var í 6-8 sæti en Brynjar Þór Guðmundsson byrjaði illa á laugardeginum og var ekki meðal efstu manna.

Sunnudagurinn heilsaði keppendum með úrfelli, vindi og kulda en þrátt fyrir það héldust skor keppenda góð. Brynjar Þór hrökk í gírinn og bætti stöðu sína rækilega frá laugardeginum. Þegar leið á daginn glaðnaði til og þegar kom að úrslitum í karlaflokk var komið hið besta veður. Sigurður Unnar og Hákon höfðu haft sætaskipti á toppnum,en aðrir í úrslitum voru Ómar Örn Jónsson (Húsavík),Hörður Sigurðsson (Hafnarfirði), Guðlaugur Bragi (Akureyri) og Guðmann Jónasson (Markviss) sem var síðasti maður inn í úrslit.

Í undanúrslitum snérist svo dæmið við, Guðmann skaut manna best og var efstur eftir undanúrslitin og því öruggur um að skjóta um gullið. Bráðabana þurfti til að útkljá hver myndi mæta honum í baráttunni um sigurinn og einnig þurfti bráðabana um hverjir skytu um 3-4 sætið. Sigurður Unnar og Guðlaugur Bragi skutu um annað sætið í undanúrslitum og fór svo að Sigurður hafði betur. Guðlaugur skaut því um bronsið gegn Ómari hafði sigur eftir harða keppni með 11 stigum gegn 10.

Þá var komið að baráttunni um fyrsta sætið á mótinu á milli Guðmanns og Sigurðar Unnars. Fljótlega náði Guðmann forustu sem hann lét ekki af hendi og fóru leikar þannig að Guðmann vann með 14 stigum gegn 11. Smá spenna er því hlaupin í baráttuna um bikarmeistaratitil karla en Guðmann saxaði verulega á forskot Guðlaugs Braga og er í öðru sæti eftir mótið, Sigurður Unnar er svo þriðji.

Um næstu helgi fer Norðurlandsmótið í skeet fram á skotsvæði Skotfélagsins Markviss á Blönduósi.

Um mánaðamótin er svo alþjóðlegt mót í Reykjavík og tímabilinu líkur svo með bikarmótinu sem fram fer í Hafnarfirði helgina 7-8 september. Húni.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir