Umdæmissamningar um hjálparlið almannavarna

Þann 7. mars síðastliðinn voru undirritaðir samningur og samkomulag um verkefni hjálparliðs almannavarna í almannavarnaaðgerðum, það er verkefni starfsmanna og sjálfboðaliða Slysavarnafélagsins Landsbjargar og starfsmanna og sjálfboðaliða Rauða kross Íslands.  Í samkomulagi og heildarsamningi kemur fram hvatning til almannavarnanefnda og lögreglustjóra hvers lögregluumdæmis um gerð samninga við hjálparlið almannavarna í hverju lögregluumdæmi.  

Á fundi með fulltrúum lögreglu, björgunarsveita Slysavarnafélagins Landsbjargar og deilda Rauða kross Íslands í Hafnarfirði þann 21. maí var samningurinn og samkomulag við félagasamtökin kynnt sérstaklega ásamt sniðmáti umdæmissamninga.   Sniðmátið er samvinnuverkefni almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra,  Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Rauða kross Íslands.  Á fundinum hófst vinna við gerð umdæmissamninga og voru fundarmenn sammála um að ljúka við gerð samninga í öllum lögregluumdæmum fyrir 19. október næstkomandi en þá helgi verður ráðstefnan BJÖRGUN haldin á vegum Slysavarnafélags Íslands.

Fleiri fréttir