Umferð beint á Neðribyggðarveg

Verið er að vinna við það að koma flutningabílnum í burtu sem valt á Skagastrandavegi í nótt og er Skagastrandarvegur lokaður þess vegna. Vegfarendum sem leið eiga um svæðið er beint á Neðribyggðarveg.

 

Vöruflutningabíllinn sem var að flytja 20 tonn af fiski frá Siglufirði suður á land skemmdist mikið við óhappið en ökumaður slapp með skrekkinn. Björgunarsveitin Strönd á Skagaströnd var kölluð út til að aðstoða við að koma farminum í kör sem fluttur var til Skagastrandar til frekari skoðunar.

Fleiri fréttir