Umferðaöngþveiti á Blönduósi
Mikil umferð var um vegi landsins í gær og varð hún mjög mikil um Blönduós enda margir á leiðinni suður og vestur af Pollamóti Þórs og N1 móti KA á Akureyri. Á Húna.is segir að föstudagsumferðin hafi verið mikil í gegnum bæinn en eftir hádegið í gær var hún enn meiri.
„Bílaplanið við N1 á Blönduósi var pakkað, svo mikið að sumir töldu sig mega leggja fyrir utan slökkvistöðina sem er ofan við sjoppuna en að sjálfsögðu er það ekki leyfilegt og verður að teljast heppilegt að ekki var útkall hjá Brunavörnum A-Hún á sama tíma því þá hefði verið erfitt að koma bílum slökkviliðsins úr húsi,“ segir á Húna.is.
Vegna umferðaþungans hvatti Lögreglan á Norðurlandi vestra ökumenn til þess að sýna þolinmæði í umferðinni á fésbókarsíðu sinni.
„Það er ekkert unnið með því að taka fram úr bílalestum og draga uppi næstu lest á undan. Sýnum þolinmæði og tillitsemi í umferðinni og þá skilum við okkur frekar öll heil heim!“