Umhleypingar framundan
Í dag verður sunnan 8-13 m/s og rigning með köflum með hita frá 1 til 7 stiga samkvæmt spá Veðurstofunnar fyrir Norðurlandi vestra. Vestlægari verður á morgun, slydda og síðar él. Hiti um eða yfir frostmarki. Vegir eru greiðfærir en víðast hálka þó síst á láglendi í Skagafirði. Flughált er á Þverárfjalli.
Veðurhorfur næstu daga:
Á fimmtudag:
Sunnan 3-10 um morguninn, þurrt og víða frost. Suðaustan 10-18 m/s síðdegis með rigningu S- og V-lands. Hiti 1 til 6 stig.
Á föstudag:
Suðlæg átt og rigning eða slydda með köflum sunnan- og vestanlands en annars þurrt að mestu. Hiti um eða yfir frostmarki en vægt frost inn til landsins.
Á laugardag:
Vestlæg átt, 5-13 m/s. Él vestantil en léttir til austanlands. Frostlaust úti við sjóinn en vægt frost inn til landsins.
Á sunnudag:
Hæg vestlæg átt og minnkandi él vestanlands en annars bjartviðri. Vægt frost inn til landsins.
Á mánudag:
Sunnan 10-18, rigning sunnan- og vestanlands. Hiti 1 til 7 stig.