Umhverfisverðlaun Skagastrandar veitt

Hallbjörg Jónsdóttir og Sigurjón Ingólfsson, Ingibergur Guðmundsson og Signý Ósk Richter og Hrafnhildur Sigurðardóttir fyrir utan Salthús.
Hallbjörg Jónsdóttir og Sigurjón Ingólfsson, Ingibergur Guðmundsson og Signý Ósk Richter og Hrafnhildur Sigurðardóttir fyrir utan Salthús.

Í vor var ákveðið að efna til umhverfisverðlauna sveitarfélagsins og voru íbúar hvattir til þess að taka saman höndum við fegrun bæjarins. Það gekk heldur betur framar vonum og skartaði Skagaströnd sínu fegursta í sumar. Meðlimir í Soroptimistaklúbbnum við Húnaflóa sem skipuðu dómnefndina voru á ferðinni í sumar og tóku út herlegheitin, þetta kemur fram á vef Skagastrandar.

Eftirfarandi viðurkenningar voru veittar:

Snyrtilegasta og best hirta gatan: Ránarbraut / Hallbjörg Jónsdóttir og Sigurjón Ingólfsson íbúar á Ránarbraut 19.

Snyrtilegasta/fallegasta garðinn: Bogabraut 13 / Ingibergur Guðmundsson og Signý Ósk Richter og snyrtilegasta fyrirtækið:

Salthús Gistiheimili Einbúastíg 3 / Hrafnhildur Sigurðardóttir

Fleiri fréttir