Umsókn um styrki í þróunarsjóðinn Ísland allt árið
Það styttist í að umsóknarfrestur renni út til að sækja um styrki í þróunarsjóðinum Ísland allt árið, en fresturinn er til 10. janúar nk. Sjóðurinn var stofnaður af Landsbankanum og iðnaðarráðuneytinu til að styðja við markaðsátakið Ísland allt árið sem er þriggja ára verkefni ætlað að styðja við lengingu ferðamannatímabilsins á Íslandi.
Samkvæmt heimasíðu Landsbankans er stofnendum sjóðsins ætlað að taka virkan þátt í uppbyggingu fyrirtækja og verkefna í ferðaþjónustu sem geta skapað heilsársstörf og aukið þannig tekjur í atvinnugreininni.
Stefnt er að því að nýta þá sérþekkingu sem til er í útibúaneti Landsbankans og undirstofnunum Iðnaðarráðuneytisins, þ.e. Byggðastofnun, Ferðamálastofu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands og styðja við einstök verkefni og styrkja tengsl sjóðsins við ferðaþjónustuna. Heildarframlag stofnenda á þessu ári og næsta verður 70 milljónir króna.
Sótt er um í gegnum umsóknarkerfi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Nánari upplýsingar um Íslands allt árið er að finna á heimasíðum Landsbankans og Nýsköpunarmiðstöðvar.