Umsóknarfrestur nálgast hratt

Í fréttatilkynningu frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra er minnt á það að umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum nálgist hratt, en hann rennur út næstkomandi mánudag, 15. febrúar.

Sjóðurinn veitir styrki til menningarstarfs, atvinnuþróunar og nýsköpunar. Frétt um síðustu úthlutun úr sjóðnum, í júní 2015, má lesa hér. Allar nánari upplýsingar er að finna á vefnum ssnv.is

Fleiri fréttir