Undirbúa stofnun fiskvinnslu á Blönduósi

Smábátasjómenn á Blönduósi vinna nú að stofnun fiskvinnslu í bænum í samvinnu við fleiri. Jón Örn Stefánsson, umboðsmaður smábátasjómannanna, sagði í samtali við Ríkisútvarpið að eins og er standa fimm aðilar á bak við hugmyndina en Jón Örn á von á að fleiri muni bætast við ef af verður og binda þeir vonir við að byggðakvóti fáist á svæðið í kjölfarið.

Hugmyndina segir Jón Örn hafa kviknað út frá því að smábátasjómennirnir vildu koma á fót eigin fiskvinnslu, þar sem fiskurinn verði unninn í heimabyggð. Á Blönduósi er nú þegar fiskvinnsla og hafa útgerðaraðilar á staðnum átt í samningaviðræðum við hana um vinnslu á afla þeirra en samningar hafa ekki náðst þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

„Hingað til hafa smábátasjómenn á Blönduósi landað á markað á Skagaströnd og þá hefur fiskurinn ekki verið talinn sem mótframlag við byggðakvóta og þar af leiðandi ekki fengið byggðakvóta.  Byggðakvótinn er í raun bara sérkapituli út af fyrir sig, það er í rauninni óánægja með byggðakvótann á svæðinu er í rauninni startið á þessari vinnslu eða þessari hugmynd að koma vinnslu af stað,“ segir Jón Örn í fréttum Ríkisútvarpsins og í síðdegis útvarpinu á Rás2 í gær.

„Núna er verið að athuga með fiskvinnsluvélar, húsnæði er svona nokkurn vegin komið í höfn og svo er bara hvað tekur langan tíma að eiga við leyfisveitendur og allt þar fram eftir götunum,“ segir Jón Örn.  

 

Fleiri fréttir