Undirbúningur fyrir Landsmót í fullum gangi - dagskrá komin á vefinn

Undirbúningur fyrir 20. Landsmót hestamanna er nú í fullum gangi og að þessu sinni fer mótið fram á keppnissvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík, dagana 25. júní – 1. júlí. Stefnir allt í að mótið verði hið glæsilegasta og að vel verði hægt að gera við gesti í sjón og leik, samkvæmt fréttatilkynningu frá landsmótsnefnd. Dagskrá keppnis- og sýningarhluta mótsins hefur nú verið birt.

„Áhugasamir geta því farið að skipuleggja dagana í brekkunni og merkja við þá dagskrárliði sem helst freista þeirra en allir sannir hestaáhugamenn ættu að finna eitthvað fyrir sinn snúð í dagskránni. Að venju er einnig hressandi skemmtidagskrá á mótinu og munu nánari upplýsingar um hana birtast eftir helgi,“ segir á landsmot.is

Hér má skoða dagskránna:

Forsala aðgöngumiða verður til 15. maí og fer fram á heimsíðu Landsmótsins.

 

Fleiri fréttir