Undirbúningur Meistaradeildar Norðurlands hafinn
Undirbúningur Meistaradeilda er hafin og mun hún fara fram reiðhöllinni Svaðastöðum í Skagafirði. Samkvæmt tilkynningu frá stjórn Meistaradeildar Norðurlands verða keppnisdagarnir eftirfarandi.
Keppnisdagar Meistaradeildar Norðurlands í vetur:
- 30. jan. Úrtaka um 6 laus sæti í deildinni.
- 20. feb. Fjórgangur
- 6. mars. Fimmgangur
- 20. mars. Tölt
- 10. apríl. Skeið og slaktaumatölt.
Á vef Eiðfaxa segir að Bjarni Jónasson hafi sigrað deildina í fyrra eftir að hafa verið meðal efstu manna í flestum greinum keppninnar en knúði svo fram sigur í æsispennandi lokakeppni í skeiði.