Ungir bændur þakklátir Jóni Bjarnasyni
Samtök ungra bænda lýsa eindreginni ánægju með þá viljayfirlýsingu sem nú hefur verið gerð milli Bændasamtaka Íslands, Landssambands kúabænda og Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þess efnis að komið verði á nýliðunarstuðningi í mjólkurframleiðslu á Íslandi eins og greint var frá hér á Feyki.is í gær.
Stuðningur við nýliðun í landbúnaði hefur verið eitt af helstu stefnumálum Samtaka ungra bænda frá stofnun samtakanna og hafa ungir bændur haldið á lofti nauðsyn þess að huga að eðlilegri nýliðun og aðgengi inn í atvinnugreinina fyrir ungt fólk, enda sé slíkt forsenda fyrir framtíð landbúnaðar á Íslandi.
Gert er ráð fyrir stuðningi við nýliðun í landbúnaði í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna og jafnframt er kveðið á um slíkt í gildandi búvörusamningi. Það er því fagnaðarefni að forsvarsmenn landbúnaðarins og kúabænda hafi stigið fyrsta skrefið í þessa átt ásamt sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem fulltrúa stjórnvalda.
Samtök ungra bænda vilja lýsa sérstöku þakklæti til Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem hefur á sinni ráðherratíð ávallt sýnt málefnum ungs fólks í landbúnaði mikinn skilning og hlustað á þeirra sjónarmið. Landbúnaður er forsenda atvinnu og búsetu víða á landsbyggðinni og öflugur landbúnaður til framtíðar byggir á því að ungt og vel menntað fólk komi til starfa í greininni.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sýnir í verki að hann hefur skilning á mikilvægi landbúnaðarins í atvinnusköpun á landsbyggðinni og verðmætasköpun þjóðarbúsins. Ein frægasta persóna bókmenntasögunnar komst að þeirri niðurstöðu að það væri mikilvægt að rækta garðinn sinn og það er ánægjulegt að sjá í verki að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur komist að sömu niðurstöðu. Færi betur á því að aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar færu að hans dæmi og einbeittu sér að því að byggja upp innviði íslensks samfélags til framtíðar.
Ungir bændur á Norðurlandi fagna líka.
Félag ungra bænda á Norðurlandi fagnar þeirri ákvörðun sem hefur verið tekin af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í samstarfi við Bændasamtök Íslands og Landssamband kúabænda að styðja við nýliðun í kúabúskap.
Félag ungra bænda á Norðurlandi telur að stuðningur við nýliðun í kúabúskap sé til þess fallinn að auðvelda ungu fólki að hefja mjólkurframleiðslu á Íslandi. Slíkur stuðningur er ekki aðeins mikilvægur fyrir unga bændur heldur líka fyrir greinina í heild sinni og með undirritun Landssambands kúabænda á þessari viljayfirlýsingu hefur sambandið lýst því yfir með ábyrgum hætti að það hvetji enn fleira ungt fólk til þess að hefja kúabúskap. Enn fremur vill Félag ungra bænda á Norðurlandi lýsa ánægju sinni með störf Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í þágu ungra bænda og nýliðunar í íslenskum landbúnaði.