Unglistahátíðina Eldur í Húnaþingi hefst í dag

Unglistarhátíðin Eldur í Húnaþingi hefst í dag og stendur hún fram á laugardagkvöld. Hátíðin hefur verið haldin ár hvert síðan árið 2003. Nánast öll vinna við undirbúning hátíðarinnar er unnin í sjálfboðavinnu af íbúum í héraðinu. Margt fólk úr ólíkum áttum hefur komið að skipulagningu hátíðarinnar ár hvert og hafa margar skemmtilegar og frumlegar hugmyndir litið dagsins ljós. Samt sem áður hefur ákveðin hefð skapast í kringum hátíðina og eru þar ákveðnir viðburðir sem skipað hafa sér fastan sess.

 

Hátíðin er sett á miðvikudagskvöldinu þar sem unglistareldurinn er tendraður ásamt því að á dagskrá er fjöldinn allur af fjölbreyttum skemmtiatriðum. Skemmtileg stemning og kjötsúpa í boði fyrir gesti og gangandi.

Einn helsti atburður hátíðarinnar eru tónleikar í Borgarvirki á föstudagskvöldinu. Borgarvirki er ein af fallegustu náttúruperlum í Húnaþingi vestra og hafa tónlistarmenn eins og Ragga Gísla, Steini (úr Hjálmum), KK, Egill Ólafsson og Hörður Torfa komið þar fram undir berum himni. Að þessu sinni mun hin efnilega söngkona Ragnheiður Gröndal koma fram en einnig verður stomp undir stjórn Daníels Geirs Sigurðssonar. Eftir Borgarvirki verða tónleikar í Félagsheimilinu á Hvammstanga með Hjálmum.

Melló Músíka er einnig fastur liður á hátíðinni þar sem tónlistarmenn úr sýslunni spila lög eftir sig og aðra. Markmiðið er að eiga saman ljúfa kvöldstund og hlusta á góða tónlist. Eftir flutning heimamanna tekur hljómsveit við og spilar fram á nótt. Í ár munu hljómsveitirnar Gamli og Valdingjarnir og Famina Fatura sjá um að skemmta tónlistarþyrstum almúganum.

Fjölskyldudagurinn er haldinn hátíðlegur á laugardeginum og þar geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar má meðal annars finna hoppikastala, sápufótboltakeppni, fyrirtækjakeppni, tónlistaratriði og margt fleira. Veitingar verða á staðnum. Á fjölskyldudeginum hefur alltaf skapast skemmtileg stemning og hefur veðrið ekki skemmt fyrir undanfarin ár.

Að kvöldi laugardags eru haldin tvö böll í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Fyrra ballið er barna- og unglingaball og seinna ballið er svo fyrir 16 ára og eldri. Hingað til hafa hljómsveitir á borð við Bermúda, Í svörtum fötum, Sniglabandið og Skítamórall leikið fyrir dansi. Buff mun sjá um að halda uppi stuðinu í ár.

Ofaná þessa fasta liði, er margt fleira skemmtilegt í boði á meðan á hátíðinni stendur. Þar má nefna Flugdrekanámskeið, zumba partý, förðunarnámskeið, listasýningar, Útvarp Unglist, tónleika í kirkjunni, heimsmeistaramót í Kleppara, íþróttamót og annað sprell. Húni.is segir frá þessu.

Dagskrá unglistahátíðarinnar má sjá hér.

Fleiri fréttir