Ungt framsóknarfólk telur að gróflega sé vegið að byggðaþróun Austur Húnavatnssýslu
Félag ungs framsóknarfólks í Húnavatnssýslum mælist til þess að aðildarviðræðum um ESB verði slitið án tafar þar sem kannanir sýna að meirihluti landsmanna er á andvígir þeim. Telur það að þeim fjármunum sem varið er til þessa málaflokks verði betur varið til málefnastarfs hér innanlands svo sem til uppbyggingar heilbrigðisþjónustu á landinu og skólamála ásamt almennri atvinnuuppbyggingu um allt land.
Aðalfundur haldinn á Hvammstanga þann 6.4.2011 sendi frá sér eftirfarandi ályktun:
Félag ungs framsóknarfólks í Húnavatnssýslum mælist til þess að Vegagerðin og ríkið dragi til baka hugmyndir sýnar um styttingu þjóðvegar 1 um Austur Húnavatnssýslu, svokallaða Svínavatnsleið. Rök ríkis með þessu eru þau að þjóðvegur 1 til Akureyrar muni styttast um 14 kílómetra og ferðatíminn um 7 mínútur. Teljum við að gróflega sé vegið að byggðaþróun Austur Húnavatnssýslu með þessum hugmyndum. Flutningafyrirtæki hafa talað um að sparnaður þessarar styttingar yrði lítill sem enginn vegna þeirra brekkna sem fyrir yrðu. Frekar ætti að stytta veginn út úr Reykjavík með Sundabraut þar sem hún myndi þjóna mun fleirum en Akureyringum einum. Einnig má beina þeim tilmælum til Vegagerðar og ríkis að eyða þessum fjármunum sem þeim langar til að eyða í þetta gæluverkefni sitt að veita þeim til viðhalds vega í báðum Húnavatnssýslum, breikka núverandi þjóðveg 1 og laga þá málarvegi sem eru til staðar þar sem þeir þjóna ekki því umferðaröryggi sem til þeirra er ætlast.