Ungur og efnilegur í handbolta
Arnar Freyr Arnarsson leikmaður hjá Fram, og sonur Arnars Þórs Sævarssonar bæjarstjóra á Blönduósi, lék þrjá æfingaleiki við Noreg um jólin og sigraði tvo og tapaði einum með liði sínu. Í leikjunum skoraði Arnar Freyr samtals 9 mörk. Húnahornið greinir frá þessu.
„Handbolti hefur ekki verið stundaður mikið á Blönduósi en þó voru æfingar í íþróttahúsinu fyrir nokkrum árum en því miður lögðust æfingarnar af. Nú geta Blönduósingar sperrt eyrun og fylgst með ungum og efnilegum leikmanni U-16 ára karlalandsliðs Íslands en hann Arnar Freyr Arnarsson, leikmaður Fram, hefur leikið vel fyrir liðið að undanförnu,“ segir á Húna.is.
Arnar Freyr spilar með þriðja flokki Fram en þeir urðu Íslandsmeistarar í sínum flokki í vor sem leið. Hann spilar inni á línunni í sókn en í miðju varnarinnar. Hann er 199 cm á hæð og 16 ára gamall.