Unnið að staðfestingu aðalskipulags Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps og Svf. Skagafjarðar

Unnið er að staðfestingu aðalskipulags Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar í umhverfisráðuneyti, samkvæmt svari Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra við fyrirspurn Telmu Magnúsdóttur varaþingmanns VG.

Fyrirspurn Telmu var svohljóðandi:

Hvenær hyggst ráðherra staðfesta aðalskipulag Húnavatnshrepps, Blönduósbæjar og sveitarfélagsins Skagafjarðar sem eru nú fullbúin og brýnt er að hljóti staðfestingu, m.a. til frekari uppbyggingar ferðaþjónustu í viðkomandi sveitarfélögum?

Umhverfisráðuneytið hafið frestað staðfestingu á umræddum aðalskipulögum á þeim hlutum er vörðuðu veglínu hringvegar um sveitarfélögin. Svf. Skagafirði var tilkynnt um frestun að staðfestingu aðalskipulags í júní 2010 en um var að ræða legu Hringvegar 1 á 15 km kafla í Skagafirði. Í maí 2011 barst Blönduósbæ og Húnavatnshreppi tilkynningar um frestun á staðfestingu aðalskipulagi vegna nýrrar veglínu hringvegar um Húnavallaleið.

Þann 25. apríl sl. barst ráðuneytinu afrit af bréfi Vegagerðarinnar til framangreindra sveitarfélaga, dags. 17. apríl 2012. Þar kemur fram að Vegagerðin dragi til baka kröfur um að hugsanlegar veglínur verði sýndar á aðalskipulagi sveitarfélaganna, sökum þess að innanríkisráðherra hafi ákveðið að Vegagerðin skuli ekki vinna áfram að tillögum um breytingar á legu hringvegar í sveitarfélögunum.

Hér má sjá svar umhverfisráðherra á alþingi.is.

Fleiri fréttir