Unnið að standsetningu nýs ráðhúss í Húnabyggð
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Lokað efni
03.07.2025
kl. 09.31
Þeir eru margs konar viðburðirnir sem sveitarstjórar taka þátt í. Hér er Pétur sveitarstjórir Húnabyggðar.viðstaddur Opna Íslandsmeistaramótið í skák í júní. „Á myndinni er ég að taka fyrsta leikinn fyrir Markús Orra Óskarsson, sem er ungur og mjög efnilegur skákmaður. Hann var með hvítt á móti stigahæðsta skákmanni mótsins, Ivan Sokolov,“ segir á Facebook-síðu Péturs.
„Helstu framkvæmdir sem eru í gangi er standsetning nýs ráðhúss, framkvæmdir við götur og gang-stéttar á Blönduósi, vatnsveitu- og fráveituframkvæmdir, stefnt að útboði nýs þjónustukjarna fyrir fólk með fötlun,“ sagði Pétur Bergþór Arason, sveitarstjóri Húnabyggðar þegar Feykir innti hann eftir því hverjar væru helstu framkvæmdir sveitasrfélagsins nú í sumar.
