Unnur Valborg tekin við sem sveitarstjóri í Húnaþingi vestra

Ragnheiður Jóna afhendir Unni Valbörgu lyklavöldin. MYND: HÚNAÞING.IS
Ragnheiður Jóna afhendir Unni Valbörgu lyklavöldin. MYND: HÚNAÞING.IS

Kosið var til sveitarstjórna um allt land í byrjun sumars og eins og gengur urðu alls konar hrókeringar varðandi sveitarstjóra. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sem gegndi starfi sveitarstjóra í Húnaþingi vestra, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi starfa og í framhaldinu var Unnur Valborg Hilmarsdóttir, þáverandi framkvæmdastjóri SSNV, ráðin sveitarstjóri og tók hún til starfa nú í byrjun september.

Unnur gegndi starfi framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra síðastliðin fjögur ár en þar áður var hún framkvæmdastjóri Selaseturs Íslands. Eiginmaður hennar er Alfreð Alfreðsson, húsasmíðameistari, en þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn.

Í frétt á vef Húnaþings vestra segir: „Kjörtímabilið 2014-2018 var hún oddviti sveitarstjórnar í Húnaþingi vestra. Um árabil starfaði hún við ráðgjöf og námskeiðahald á fyrirtækjamarkaði. Unnur er með meistarapróf í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands og B.Ed. próf frá Kennaraháskóla Íslands auk þess að hafa lokið diplomanámi í rekstri og stjórnun frá Endurmenntun Háskóla Íslands og stjórnendamarkþjálfanámi frá Opna Háskólanum og CoachU.

Ég er full tilhlökkunar að takast á við þetta krefjandi verkefni. Fyrstu dagana hef ég nýtt í að heimsækja stofnanir sveitarfélagsins og það ágæta fólk sem þar starfar. Ég bý svo vel að þekkja samfélagið hér býsna vel og þekki þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir en ekki síður þau tækifæri sem hér er að finna. Stóra verkefnið er að finna jafnvægið milli þess að takast á við áskoranirnar og vinna ötullega að þeim tækifærum sem efla samfélagið enn frekar, í mínum huga eru þau tækifæri fjölmörg. Ég tek við afar góðu búi af fráfarandi sveitarstjóra, Ragnheiði Jónu Ingimarsdóttur, og vil þakka henni sérstaklega fyrir sín góðu störf í þágu samfélagsins á undanförnum árum’’ segir Unnur.“

Heimild: Húnaþing.is

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir