Upp er runninn öskudagur
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
05.03.2014
kl. 15.18
Sagt er að öskudagur eigi sér átján bræður og sé eitthvað til í því þurfa Sauðkrækingar a.m.k. ekki að kvíða veðurfarinu næsta rúman hálfa mánuðinn þó vissulega væri nokkuð kalt í morgun. Grímuklædd börn létu það ekki á sig fá þegar þau bjuggu sig af stað í bæjarferð.
Börnin fóru vítt og breitt um bæinn og sungu í fyrirtækjum og stofnunum og uppskáru sælgæti eða önnur verðlaun fyrir. Ætla má að Sjóvá hafi verið vinsæll viðkomustaður því þar var búið að setja sérstaka öskudagsútstillingu í gluggann og tók umboðsmaðurinn á móti krökkunum í kúrekaklæðum.
Myndir frá Öskudegi á Sauðárkróki munu birtast í 9. tölublaði Feykis sem kemur út á morgun.