Upp er runninn öskudagur, ákaflega skýr og fagur
Sagt er að öskudagur eigi sér átján bræður og sé eitthvað til í því þurfa íbúar á Norðurlandi vestra ekki að kvíða veðurfarinu næsta rúman hálfa mánuðinn, þó vissulega væri nokkuð kalt í morgun.
Ætla má öll börn sem vettlingi geta valdið haldi af stað í leiðangur og syngi í fyrirtækjum og stofnunum og uppskeri sælgæti eða önnur verðlaun fyrir. Allar öskudagsmyndir eru vel þegnar og má senda þær á feykir@feykir.is.