Uppboð haldið á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Blönduósi hefur auglýst uppboð sem verður haldið á ýmsum lausafjármunum að Húnabraut 33 á Blönduósi, húsnæði Grýtu ehf. sem er sérhæfð matvælavinnsla í gamla mjólkursamlaginu á Blönduósi. Uppboðið fer fram föstudaginn 8. apríl nk., kl. 11:00.
Meðal þeirra hluta sem boðnir verða upp eru gerilsneyðingartæki frá GEA Liquid Processing Scandinavia A/S, hakkavél og varahlutir af gerðinni CFS Wholfking 250.
Einnig verður boðið upp framleiðslutankur 1250 l rústf., kælitankur 900 l rústf., kælitankur 500 l rústf., mjölskilvinda af gerðinni Alfa Laval, tveir varmaskiptar af gerðinni Alfa Laval, sérsmíðað hristisigti, eimingartæki auk dælu og kælis af gerðinni Alfa Laval, Rotavapor eimari af gerðinni Buchi, tveir tölvustýrðir gufulokar af gerðinni Samson, gufuketill m/stýribúnaði (1,3MW) af gerðinni Donlee, varahlutir í gufuketil af gerðinni Donlee, gufulagnir, lokar og gildrur, kælikerfi af gerðinni Dagard, vogir og handlyftur, ýmis mælitæki og kör og aðrir lausamunir.
Greiðsla við hamarshögg. Hvorki ávísanir né kreditkort eru tekin gild sem greiðsla einungis debetkort eða peningar.