Upplestur og aðventustemning á Heimilisiðnaðarsafninu

Aðventustemning og upplestur bóka verður á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi miðvikudaginn 7. desember nk. kl. 20.

Eftir upplesturinn verður boðið upp á súkkulaðidrykk, kaffi og jólasmákökur. Bókahöfundar verða viðstaddir og munu árita bækur sínar og hafa þær til sölu. Lesið verður upp úr fjórum bókum, þær eru eftirfarandi:

  • · Þessi kona - höfundur Guðríður B. Helgadóttir, kynnir og les.
  • · Í nýjum heimi – höfundur Jóhanna Kristín Atladóttir, kynnir     og les.
  • · Þórdís Spákona – höfundar Dagný Marín Sigmarsdóttir,         Svava G. Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir, Dagný kynnir og les.
  • · Nokkur lauf að norðan ll – Birgitta les smásögu og kynnir útgáfu Töfrakvenna.

Heimilisiðnaðarsafnið minnir á hinar vinsælu laufabrauðsvörur s.s. viskastykki, löbera, servíettur, diskamottur og sitthvað fleira í litlu safnbúðinni, sem eru tilvaldar til jólagjafa. Einnig er Vefnaðarbók Halldóru á tilboðsverði í safninu, en hún er sígilt alþýðuþjóðrit.

Miðvikudaginn 14. desember verðu lesið upp úr nýjum barnabókum og verður það auglýst nánar síðar.

 

Fleiri fréttir