Upprekstur sauðfjár leyfilegur í vikunni

Fjallskilanefnd Grímstungu- og Haukagilsheiðar fór í gróðurskoðunarferð miðvikudaginn 13. júní. Samkvæmt heimasíðu Húnavatnshrepps var ákveðið að upprekstur sauðfjár verði leyfður 18. júní  í Víðidalsfjall og 21.júní á Haukagilsheiði, ákvörðun um Grímstunguheiði verður tekin síðar.

„Þeir sem ætla að fá að reka hross á afrétt skulu tilkynna fjölda fyrir 5. júlí 2012 til formanns fjallskilastjórnar Birgis Ingþórssonar. Ákveðið var að leyfa upprekstur hrossa 20.júlí.  Verði fjöldi hrossa mjög mikil getur þurft að takmarka upprekstur,“ segir í tilkynningu frá fjallaskilanefnd.

 

Fleiri fréttir