Uppskeruhátíð hestamanna á Broadway

Uppskeruhátíð hestamanna verður haldin á Broadway, laugardaginn 5. nóvember, þar sem fagnað verður viðburðaríku ári í hestaheiminum. Hestamenn eru hvattir til að taka daginn frá og skapa góða stemningu fyrir kvöldinu.

Fram kemur á heimsíðu Stíganda að knapar verði heiðraðir að venju og verða valdir knapar ársins í sex flokkum: efnilegasti knapinn, skeiðknapinn, íþróttaknapinn, gæðingaknapinn, kynbótaknapinn og knapi ársins. Einnig verða afhent „heiðursverðlaun LH“ og „ræktun keppnishrossa“. Svo mun Hljómsveitin Von mun halda upp stuðinu ásamt Matta Matt.

Haraldur Þórarinsson formaður Landssambands hestamannafélaga mun setja hátíðina og veislustjórn verður í höndum Halldórs Gylfasonar leikara. Verð á borðhaldi, með girnilegum matseðli, og balli er kr. 7.900 en kr. 2.500 bara á ballið.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Stíganda.

Fleiri fréttir