Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Hvatar var um helgina
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Hvatar fór fram um síðustu helgi og var nokkuð góð mæting í íþróttahúsið, segir á Húna.is. Verðlaun voru afhent til þeirra sem sýndu besta ástundun, mestu framfarir og voru valdir leikmenn ársins í sínum flokki. Alls voru leikmenn úr fimm flokkum verðlaunaðir en að því loknu var öllum viðstöddum boðið í pylsupartý. Eftir að hafa gætt sér á dýrindis pylsum var farið í nokkra leiki.
Verðlaunahafar í flokkunum eru eftirfarandi:
8. flokkur
Í þessum flokki fengu allir verðlaunapening fyrir þátttökuna.
7. flokkur
Fyrir bestu ástundun fengu þeir Þórður Pálmi Þórðarson og Kristinn Bjarni Andrason viðurkenningu og fyrir mestu framfarir fékk Haraldur Björgvin Eysteinsson viðurkenningu.
6. flokkur kvenna
Fyrir bestu ástundun fengu þær Jóhanna Björk Auðunsdóttir og Ísól Katla Róbertsdóttir viðurkenningu og fyrir mestu framfarir fékk Þóra Karen Þorleifsdóttir viðurkenningu.
6. flokkur karla
Fyrir bestu ástundun fengu þeir Sigurður Pétur Stefánsson, Jón Gísli Stefánsson og Víkingur Leon Þórðarson viðurkenningu og fyrir mestu framfarir fékk Rúnar Ingi Eysteinsson viðurkenningu.
5. flokkur kvenna
Fyrir bestu ástundun fengu þær Ingibjörg Dögg Gunnarsdóttir, Ástrós Benediktsdóttir og Vala Berglind Valsdóttir viðurkenningu og fyrir mestu framfarir fékk Tanja Kristín Sindradóttir viðurkenningu.
5. flokkur karla
Fyrir bestu ástundun fengu þeir Anton Ingi Tryggvason og Hilmar Smári Hilmarsson viðurkenningu og fyrir mestu framfarir fékk Daníel Máni Róbertsson viðurkenningu.
4. flokkur kvenna
Fyrir bestu ástundun fengu þær Kristrún Hilmarsdóttir og Karen Sól Káradóttir viðurkenningu og mestu framfarir Margret Rún Auðunsdóttir. Leikmaður ársins er Alma Einarsdóttir.
4. flokkur karla
Fyrir bestu ástundun fengu þeir Bergsveinn Snær Guðrúnarson og Pétur Arnar Kárason viðurkenningu og fyrir mestu framfarir fékk Björn Blöndal Benediktsson viðurkenningu. Leikmaður ársins er Sigurður Bjarni Aadnegard.
3. flokkur kvenna
Fyrir bestu ástundun fékk Hrafnhildur Björnsdóttir viðurkenningu og var valinn leikmaður ársins.
3. flokkur karla
Fyrir bestu ástundun fékk Kristófer Már Tryggvason viðurkenningu og fyrir mestu framfarir fékk Kristófer Skúli Auðunsson viðurkenningu. Leikmaður ársins er Ingibergur Kort Sigurðsson.
Í lokin fékk Auðunn Sigurðsson viðurkenningu fyrir sjálfboðaliða ársins og stjórn knattspyrnudeildar afhenti Eysteini Pétri mynd af Blönduósi í þakklætisskyni fyrir hans störf fyrir félagið.
Hægt er að sjá fleiri myndir af hátíðinni HÉR.