Úrkoma í veðurkortunum
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er sunnan 10-18 og rigning. Hiti 2 til 7 stig. Samkvæmt Veðurstofu Íslands verður vestlægari eftir hádegi og él, en dregur úr vindi og úr komu í kvöld. Hægviðri og stöku él í nótt en sunnan 5-10 og dálítil snjókoma síðdegis á morgun. Hiti um og yfir frostmarki.
Vegagerðin varar vegfarendur enn við skemmdum á klæðningu (slitlagi) á Þverárfjallsvegi. Greiðfært er nú orðið víðast hvar á landinu. Þungatakmarkanir eru víða um land og má fá nánari upplýsingar í síma 1777 eða á vef Vegagerðarinnar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Fremur hæg vestlæg átt, þurrt og víða vægt frost. Gengur í suðvestan 8-13 m/s eftir hádegi með rigningu eða snjókomu en rigningu syðst. Hiti 0 til 5 stig. Hægari og áfram úrkomulaust A-til á landinu.
Á sunnudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s. Rigning, slydda eða snjókoma, en þurrt A-lands. Hiti 0 til 5 stig með suðurströndinni en vægt frost annars staðar. Gengur í norðaustan 18-23 á Vestfjörðum um kvöldið með snjókomu.
Á mánudag:
Norðaustan 15-23 m/s NV-til og snjókoma annars en hægari og úrkomulítið, en skýjað með köflum um landi sunnanvert. Frost 2 til 8 stig.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir hvassa norðaustanátt með snjókomu N- og A-til og einnig snjókoma um tíma S-lands. Áfram kalt í veðri.
Á fimmtudag:
Minnkandi norðaustanátt og úrkomulítið en talsvert frost um allt land.