Úrslit Opna Icelandair golfers
Opna Icelandair golfers fór fram á Hlíðarenda laugardaginn 29 júní. Leikfyrirkomulagið var höggleikur með og án forgjafar.
Helstu úrslit í höggleik án forgjafar:
1. sæti Ólafur Unnar Gylfason GÓ á 76 höggum.
2 sæti Oddur Valsson GSS á 77 höggum.
3. sæti Bergur Rúnar Björnsson GÓ á 79 höggum.
Háður var bráðabani um þriðja sæti þar sem Bergur Rúnar og Arnar Geir Hjartarson GSS voru báðir á 79 höggum. Níunda hola féll á pari en Bergur Rúnar sló síðan nær holu af 100 metra færi.
Úrslit í höggleik með forgjöf:
1. sæti var Hákon Ingi Rafnsson GSS á 66 höggum nettó.
2 sæti Sævar Steingrímsson GSS á 68 höggum nettó.
3 sæti Stefán Atli Agnarsson á 70 höggum nettó.
Golfklúbbur Sauðárkróks segir frá þessu.